Auglýsing um kjörfund í Þingeyjarsveit vegna forsetakosninga 27. júní 2020

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00.

Kosið verður í einni kjördeild í Ljósvetningabúð.

Kosningarétt hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá.

Kjörstjórn minnir kjósendur á að hafa með sér skilríki.

Allar nánari upplýsingar um forsetakosningarnar, s.s. kjörskrá, lög og leiðbeiningar er hægt að nálgast á upplýsingavefnum www.kosning.is.

 

Kjörstjórn Þingeyjarsveitar

Bjarni Höskuldsson

Dagný Pétursdóttir

Gísli Sigurðsson