Fara í efni

Auglýsing um kjörfund í Þingeyjarsveit

Auglýsing um kjörfund í Þingeyjarsveit vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026.

 

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og stendur til 22:00

Kosið verður í einni kjördeild í Félagsheimilinu Breiðumýri.

Kosningarétt hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá.

Kjósendur skulu hafa meðferðis gild persónuskilríki (ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini).

Unnt er að framvísa rafrænu ökuskírteini.

 

Talning atkvæða hefst eins fljótt og kostur er eftir að kjörstaður lokar.

Allar nánari upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar, s.s. kjörskrá, lög og leiðbeiningar er hægt að nálgast á upplýsingavefnum www.kosning.is.

Sími yfirkjörstjórnar er 895-3386

 

Yfirkjörstjórn Þingeyjarsveitar

Dagný Pétursdóttir formaður

Bjarni Höskuldsson

Jóhanna Njálsdóttir

Getum við bætt efni þessarar síðu?