Alþingiskosningar 2021

Kjörstaður - Ljósvetningabúð

Laugardaginn 25. september 2021 næstkomandi fara fram kosningar til Alþingis.

Í Þingeyjarsveit fer atkvæðagreiðsla fram í Ljósvetningabúð og hefst kjörfundur kl. 10:00.

Kjörfundur verður opinn til kl. 22:00.

Á kjörstað geri kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja eða á annan fullnægjandi hátt.

Sími kjörstjórnar á kjörstað er 4643617 og 8660025

Kjörstjórn