Fara í efni

Allir út að tína!

Gamli góði hefðbundni ruslatínsludagurinn í Mývatnssveit verður haldinn í dag, þriðjudaginn 27. maí. Kl 17:00
Mæting annarsvegar við Skjólbrekku og hinsvegar í miðbæ Reykjahlíðar við Dyngjuna.
Fyrirkomulagið verður það sama og í fyrra; Farið verður á tveimur rútum frá þessum stöðum, réttsælis önnur rútan og rangsælis hin. Þátttakendur verða sett út tvö og tvö með jöfnu bili á þá staði sem ætlunin er að hreinsa og tekin upp í rúturnar að verki loknu og skilað á upphafsstaði.

Daddis Pizza, Skútaís og Fjöregg bjóða öllum í veislu að tínslu lokinni í Jarðböðunum venju samkvæmt. Jarðböðin bjóða frítt í böðin samkvæmt aldagamalli hefð.
Allt sem til þarf til hreinsunar verður á stöðunum tveimur.
Gámasvæði við Grímsstaði verður ekki opið vegna malbikunar en rusli verður safnað við áhaldahúsið á Múlavegi.
Nánari upplýsingar fást hjá Óla Þresti í síma: 894 3433
 
Við hvetjum alla í sveitarfélaginu til að taka þátt hvort sem það er í skipulagðri tínslu í Mývatnssveit eða á eigin vegum í sínu nánasta umhverfi! 

------------------------
 
Annual Clean-up Campaign 2025 - 27.May 17:00!

Every spring locals organize picking up garbage around lake Mývatn. Be part of our community and help keep our beautiful area clean. Please feel free to join us. Meeting points are at Skjólbrekka in Skútustaðir or in the center of Reykjahlíð at the craft shop Dyngja at 17:00.
More information about the arrangements can be found at these places. All participants are invited to the Nature baths 18:00 - 19:30 for Daddi´s pizza, Skútaís and free entrance to the baths.
More info: Ólafur Þröstur +354 894 3433
Getum við bætt efni þessarar síðu?