Fara í efni

Áhyggjur af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts

Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% í byrjun árs 2027 hefur vakið áhyggjur innan ferðaþjónustunnar og víðar. Hækkunin er hluti af áformum ríkisstjórnarinnar og gæti haft veruleg áhrif á rekstrarforsendur baðlóna víða um land, þar á meðal Jarðbaðanna við Mývatn.

Jarðböðin eru ein af mikilvægustu stoðum ferðaþjónustunnar í Þingeyjarsveit og hafa á undanförnum árum ráðist í umfangsmikla uppbyggingu. Starfsemi þeirra hefur jafnframt áhrif á aðra ferðaþjónustu og atvinnustarfsemi á svæðinu, enda eru þau mikilvægur þáttur í aðdráttarafli svæðisins fyrir ferðamenn.

Áhrif um allt sveitarfélagið

Á síðasta fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar Þingeyjarsveitar voru fyrirhugaðar breytingar til umræðu undir dagskrárliðnum Uppbygging, atvinna og nýsköpun – staða mála. Nefndin bókaði eftirfarandi:

„Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar telur áform ríkisstjórnarinnar um hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% frá byrjun árs 2027 varhugaverð. Jarðböðin í Mývatnssveit, sem eru mikilvægur hluti ferðaþjónustunnar á svæðinu, hafa staðið í milljarða fjárfestingum og munu áform ríkisstjórnarinnar breyta þeirra rekstrarforsendum. Mikilvægi Jarðbaðanna nær langt út fyrir eigin rekstur, styður við störf, eflir aðra þjónustu og skapar verðmæti í sveitarfélaginu.

Nefndin hvetur stjórnvöld til að endurskoða áformin og falla frá þeim.“

Getum við bætt efni þessarar síðu?