Afleysing í leikskólum
22.10.2026
Barnaborg og Krílabær leita að áhugasömum starfsmanni í afleysingar með góðum möguleikum á föstu stöðuhlutfalli. Barnaborg og Krílabær eru hluti af Þingeyjarskóla sem er samrekinn leik- og grunnskóli. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Barnaborg er til húsa í suðurenda Þingeyjarskóla í Aðaldal. Krílabær er staðsettur á Laugum í Reykjadal.
- Um er að ræða aðstoð við umönnun barnanna undir leiðsögn leikskólakennara og leikskólastjóra
- Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
- Húsnæði í boði í nágrenni skólans.
- Umsóknarfrestur er til 2. nóvember 2026
Við leitum að starfsmanni sem:
- Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim
- Er mjög hæfur í mannlegum samskiptum
- Er stundvís og samviskusamur
- Hefur reynslu af umönnun barna á leikskólaaldri
- Talar góða íslensku, samsvarandi þrepi C1.
Nánari upplýsingar um starfið og vinnufyrirkomlag gefur Nanna Marteinsdóttir leikskólastjóri í síma 464-3590 og 898-0790 eða í netfangið: nanna@thingeyjarskoli.is
Umsóknir skulu jafnframt sendar til leikskólastjóra á sama netfang. Gerð er krafa um hreint sakavottorð.