Fara í efni

Aðstoðarleikskólastjóri á Yl

Leikskólinn Ylur auglýsir stöðu aðstoðarleikskólastjóra til afleysingar í eitt ár frá og með næstu áramótum með möguleika á áframhaldandi starfi á leikskólanum. Um er að ræða gefandi og skemmtilegt stjórnunarstarf með tækifæri til faglegar starfsþróunar.

Leitað er að leikskólakennara með leiðtogahæfileika sem er tilbúinn að taka þátt í að leiða áfram metnaðarfullt og faglegt starf leikskólans.

Ylur er tveggja deilda leikskóli í Mývatnssveit samrekinn Reykjahlíðarskóla. Í leikskólanum eru 24 börn á aldrinum 1 – 5 ára. Ylur er grænfána- og heilsueflandi leikskóli sem leggur áherslu á heilsueflingu, vináttu, leik og útikennslu. Mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskólans og íþróttamiðstöðvarinnar í Mývatnssveit.

Um er að ræða spennandi starf fyrir metnaðarfullan leikskólakennara. Leitað er að einstaklingi með góða hæfni og lipurð í samskiptum, með góða þekkingu og reynslu af leikskólastarfi og hæfni til að veita faglega forystu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Faglegur leiðtogi og stuðningur við aðra starfsmenn leikskólans.
  • Dagleg stjórnun og skipulagning kennslu- og uppeldisstarfsins.
  • Staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans.
  • Sinnir starfi deildarstjóra leikskólans.
  • Virkur þátttakandi í mótun stefnu leikskólans og áætlunargerð með skólastjóra.
  • Samskipti og samvinna við foreldra.
  • Sinna öðrum þeim verkefnum sem skólastjóri felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu.
  • Góð reynsla af starfi í leikskóla.
  • Reynsla af stjórnun æskileg.
  • Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
  • Mjög góð hæfni og lipurð í samskiptum.
  • Sjálfstæði og frumkvæði.
  • Góð íslenskukunnátta.

Við leitum að starfsfólki sem

  • Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu.
  • Hefur brennandi áhuga á að starfa með börnum.
  • Er lausnamiðað og vill taka þátt i samstarfi og teymisvinnu.
  • Hefur reynslu/menntun af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Gerðar eru kröfur um góða hæfni í mannlegum samskipum, stundvísi, hreint sakarvottorð og góða íslenskukunnáttu í töluðu og rituðu máli. Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FSL (Félags Stjórnenda á Leikskólum) Sveitarfélagið býður fram aðstoð við að finna íbúðarhúsnæði við hæfi.

Umsóknarfrestur er til 29. október 2026. Með umsókn skal fylgja greinagóð ferilskrá, kynningarbréf og meðmælendur.

Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Huld Aðalbjarnardóttir, huld@reykjahlidarskoli.is og í síma 848-2205.

Nánari upplýsingar um leikskólann er hægt að finna hér.

Getum við bætt efni þessarar síðu?