Fara í efni

Aðgengi að rotþróm í sveitarfélaginu

Þingeyjarsveit minnir fasteignaeigendur á mikilvægi þess að gott og greiðfært aðgengi sé að rotþróm þegar kemur að losun þeirra.

Til þess að losun rotþróa geti farið fram með öruggum og skilvirkum hætti þurfa rotþrær að vera aðgengilegar fyrir losunarbifreiðar.

Merkið staðsetningu rotþróarinnar

Við hvetjum eigendur fasteigna til að merkja vel staðsetningu rotþróa, sérstaklega þegar þær eru niðurgrafnar og ekki auðvelt að sjá hvar þær eru.

Góð merking getur sparað tíma við losun og auðveldað verktökum að finna rotþróna.

Einnig er mikilvægt að tryggja að ekki séu bílar, tæki, byggingarefni eða annað sem hindrar aðgengi að rotþrónni þegar losun fer fram.

Niðurgrafnar og steyptar rotþrær

Þar sem rotþró er niðurgrafin eða steypt og þannig gerð að erfitt er að komast að henni er æskilegt að útbúa aðgengilegt mannop/lúgu sem gerir verktaka kleift að framkvæma losun með öruggum og eðlilegum hætti.

Æskilegt er að merkja staðsetninguna með varanlegum hætti þannig að auðvelt sé að finna rotþróna, jafnvel þegar snjór er á jörðu.

Með góðu aðgengi og skýrri merkingu má auðvelda losun, stytta tíma við hvert útkall og draga úr hættu á skemmdum á landi og mannvirkjum.

Við hvetjum því alla fasteignaeigendur sem eru með rotþró á lóð sinni að huga að aðgengi og merkingum áður en næsta losun fer fram.

Þökkum gott samstarf

Þingeyjarsveit

Getum við bætt efni þessarar síðu?