Fara í efni

Umhverfisnefnd

38. fundur 19. nóvember 2026 kl. 15:30 - 18:00 í Þingey
Nefndarmenn
  • Arnheiður Rán Almarsdóttir
  • Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir
  • Anton Freyr Birgisson
  • Hörður Sigurðsson
  • Sigurður Erlingsson
Starfsmenn
  • Rögnvaldur Harðarson
  • Daði Lange Friðriksson
Fundargerð ritaði: Daði Lange
Dagskrá

1.Laugar - erindi vegna mengunarmála

Málsnúmer 2610015Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggur erindi frá Sverri Haraldssyni vegna mengunarmála á Laugum. Sverrir Haraldsson og Haraldur R. Sverrisson mæta á fundinn og skýra sína hlið á mengunarmálum á Laugum.
Umhverfisnefnd þakkar Sverri og Haraldi fyrir kynninguna og góðar umræður. Nefndin mun halda vinnufund með landeigendum og öðrum hagsmunaaðilum um málið og leita leiða til lausna.

Sverrir og Haraldur viku af fundi 16:32

2.Laugafiskur - vöktunaráætlun

Málsnúmer 2601034Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn liggur umfjöllun um úrbætur að hálfu sveitarfélagsins til umhverfisnefndar og minnisblað um vöktunaráætlun frá Náttúrustofu Norðausturlands. Málinu var frestað á síðasta fundi.
Umhverfisnefnd er sammála um það að taka mætti fleiri sýni og oftar til að sjá ferilinn betur. Auk þess er mikilvægt að taka sýni ofan við Laugahverfið, t.d. við Hjalla til að sjá efnainnihald þar.
Umhverfisnefnd óskar því eftir ýtarlegri og uppfærðri vöktunaráæltun með tíðari sýnatöku en sjötta hvert ár.

3.LIFE ICEWATER - Hreinsun á Torfdalstjörn

Málsnúmer 2611042Vakta málsnúmer

Aðilar að LIFE ICEWATER verkefninu hafa lagt til að Torfdalstjörn verði tekin inn sem hluti af verkefninu sem snýr að úrbótum á vatnsgæðum og blágrænum lausnum. Staða tjarnarinnar yrði greind og reynt að bæta úr þeim vanda sem hefur safnast þar upp, greina vatn, botnset og helstu innstreymi, skilgreina hvað tilheyrir uppsöfnuðum vanda og hvað kemur frá núverandi innrennsli, meta hvaða aðgerðir gætu raunverulega bætt ástandið og setja upp mælingar svo hægt væri að sýna fram á árangur eða skort á árangri.

Umhverfisnefnd þakkar Karen fyrir góða og áhugaverða kynningu. Nefndin óskaði eftir minnisblað um verkefnið frá henni og hugsanlegan kostnað.

Karen vék af fundi 17:15

4.Sorpútboð Þingeyjarsveitar

Málsnúmer 2503045Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum liggur minnisblaðið um sorphirðuútboð en á síðasta fundi umhverfisnefndar var formanni nefndar ásamt starfsmönnum falið að klára minnisblaðið.
Þar sem málaflokkurinn um sorpmál er gríðarlega kostnaðarmikill og mikilvægur sveitarfélaginu þá óskar umhverfisnefnd eftir því að það verði ráðinn starfsmaður eða verktaki til að taka málaflokkinn, fara djúpt ofan í minnisblað umhverfisnefndar og klára sorpútboðið.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?