LIFE ICEWATER - Hreinsun á Torfdalstjörn
Málsnúmer 2611042
Vakta málsnúmerUmhverfisnefnd - 38. fundur - 19.11.2026
Aðilar að LIFE ICEWATER verkefninu hafa lagt til að Torfdalstjörn verði tekin inn sem hluti af verkefninu sem snýr að úrbótum á vatnsgæðum og blágrænum lausnum. Staða tjarnarinnar yrði greind og reynt að bæta úr þeim vanda sem hefur safnast þar upp, greina vatn, botnset og helstu innstreymi, skilgreina hvað tilheyrir uppsöfnuðum vanda og hvað kemur frá núverandi innrennsli, meta hvaða aðgerðir gætu raunverulega bætt ástandið og setja upp mælingar svo hægt væri að sýna fram á árangur eða skort á árangri.
Karen vék af fundi 17:15