Fara í efni

Skipulagsnefnd

57. fundur 24. nóvember 2026 kl. 09:00 - 10:42 í Þingey
Nefndarmenn
  • Knútur Emil Jónasson
  • Sigurður Guðni Böðvarsson
  • Líney Rúnarsdóttir
  • Hallgrímur Páll Leifsson
  • Garðar Finnsson
Starfsmenn
  • Rögnvaldur Harðarson
  • Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Dagskrá
Garðar sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

1.Vogar 1 - Hraunskógar- merkjalýsing

Málsnúmer 2611037Vakta málsnúmer

Innkomin er merkjalýsing frá Hirti Arnarssyni þar sem verið er að stofna lóðir fyrir íbúðarhús í Hraunskógum Vogum Þingeyjarsveit.
Hallgrímur vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við merkjalýsingu, enda samræmist hún skipulagsáætlunum. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Nefndin vekur athygli á því að afgreiðslan tekur eingöngu til skipulagslegra sjónarmiða en felur ekki í sér úrlausn um eignarrétt eða landamerkjaágreining eftir því sem kann að vera til staðar.

2.Draflastaðir - fjölgun sumarhúsa - óveruleg breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 2611044Vakta málsnúmer

Óskað hefur verið heimildar til að gera óverulega breytingu á aðalskipulagi vegna frístundabyggðar F310 að Melum í Fnjóskadal. Í gildandi aðalskipulagi er gert ráð fyrir allt að 15 frístundahúsum innan svæðisins. Óskað er eftir að heimild verði aukin í allt að 30 frístundahús, án þess að afmörkun frístundabyggðarsvæðisins verði breytt.
Skipulagsnefnd felst ekki á að breytingin sé óveruleg en heimilar að gerð verði veruleg breyting á aðalskipulagi í samræmi við framlögð gögn samhliða gerð deiliskipulags fyrir frístundasvæðið.

3.Skútustaðir 3b - ÍB654 Rauðaborg - deiliskipulag

Málsnúmer 2611054Vakta málsnúmer

Mývatn ehf leggur fram skipulagslýsingu fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir Skútustaði 3b. Skipulagssvæðið er um 0,7 ha og fellur innan íbúðarsvæðis ÍB654, Rauðaborgar, samkvæmt Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2024-2044. Í deiliskipulaginu verður gerð grein fyrir fyrirhugaðri íbúðarbyggð, byggingarreitum, aðkomu, bílastæðum, veitum, fráveitu, lóðafrágangi og öðrum skilmálum sem nauðsynlegir eru vegna uppbyggingar svæðisins.

Markmið uppbyggingarinnar er meðal annars að skapa möguleika á litlum og fjölbreyttum íbúðum fyrir starfsfólk sem vill búa á svæðinu og stuðla þannig að auknum búsetumöguleikum á Skútustöðum.
Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu í samræmi við 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Tímabundin eldsneytisafgreiðsla Orkunnar í Reykjahlíð

Málsnúmer 2611043Vakta málsnúmer

Drangar ehf leggja fram umsókn um heimild til að koma fyrir tímabundinni bensínafgreiðslu Orkunnar á lóð sinni við Hraunveg 10 í Reykjahlíð.
Skipulagsnefnd vísar í bókun sveitarstjórnar frá 2019 um að afgreiðsla olíu á lóðinni skuli vera víkjandi og hafnar umsókn um uppsetningu eldsneytisafgreiðslu innan verndarsvæðis Mývatns og Laxár. Skipulagsnefnd hvetur til þess að fundin verði varanleg lausn á eldsneytisafgreiðslu norðan Mývatns.

5.Tímabundin eldsneytisafgreiðsla N1 við Múlaveg í Reykjahlíð

Málsnúmer 2611049Vakta málsnúmer

N1 óskar eftir að fá að setja upp tímabundna sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldsneyti á plani við Múlaveg 1.

Í því felst að setja upp eldsneytisgeyma ofanjarðar, olíuskilju neðanjarðar, steypt plan, afgreiðslutæki, árekstrarvarnir og lagnir sem tilheyra framkvæmd þessari.
Skipulagsnefnd heimilar tímabundna uppsetningu og starfsemi eldsneytisafgreiðslu á lóðinni Múlavegi 1 til allt að tveggja ára, þar sem hún er utan verndarsvæðis Mývatns og Laxár og starfsemin er innan lóðar á athafnasvæði innan þéttbýlis og samræmist því skipulagsáætlunum. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að mengunarvarnir séu fullnægjandi og viðbragðsáætlanir séu í gildi og í takt við nálægð verndarsvæðis Mývatns- og Laxár.
Skipulagsfulltrúa falið að yfirfara akstursleiðir og aðkomu í samráði við N1, Vegagerðina og lóðarhafa með öryggi vegfarenda í fyrirrúmi. Skipulagsnefnd leggur áherslu á snyrtilegan frágang á lóðinni. Skipulagsnefnd telur brýnt að koma eldsneytisafgreiðslu norðan Mývatns í varanlegt horf og leggur áherslu á að fundin verði staðsetning til framtíðar.

6.Þingeyjarsveit - tilkynning um fyrirhugaðar niðurfellingar vega af vegaskrá

Málsnúmer 2511044Vakta málsnúmer

Vegagerðin hefur sent inn tilkynningu um niðurfelingu vegar inn Fnjóskadal frá Illugastöðum.

Skipulagsnefnd bendir á að viðkomandi vegur þjónar mikilvægum innviðum s.s. borholum og veitumannvirkjum sem hafa grundvallarþýðingu fyrir veituþjónustu á svæðinu. Nefndin telur mikilvægt að vegurinn verði áfram í þjónustu Vegagerðarinnar.

Fundi slitið - kl. 10:42.

Getum við bætt efni þessarar síðu?