Draflastaðir - fjölgun sumarhúsa - óveruleg breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 2611044
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 57. fundur - 24.11.2026
Óskað hefur verið heimildar til að gera óverulega breytingu á aðalskipulagi vegna frístundabyggðar F310 að Melum í Fnjóskadal. Í gildandi aðalskipulagi er gert ráð fyrir allt að 15 frístundahúsum innan svæðisins. Óskað er eftir að heimild verði aukin í allt að 30 frístundahús, án þess að afmörkun frístundabyggðarsvæðisins verði breytt.
Skipulagsnefnd felst ekki á að breytingin sé óveruleg en heimilar að gerð verði veruleg breyting á aðalskipulagi í samræmi við framlögð gögn samhliða gerð deiliskipulags fyrir frístundasvæðið.