Fara í efni

Tímabundin eldsneytisafgreiðsla Orkunnar í Reykjahlíð

Málsnúmer 2611043

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 57. fundur - 24.11.2026

Drangar ehf leggja fram umsókn um heimild til að koma fyrir tímabundinni bensínafgreiðslu Orkunnar á lóð sinni við Hraunveg 10 í Reykjahlíð.
Skipulagsnefnd vísar í bókun sveitarstjórnar frá 2019 um að afgreiðsla olíu á lóðinni skuli vera víkjandi og hafnar umsókn um uppsetningu eldsneytisafgreiðslu innan verndarsvæðis Mývatns og Laxár. Skipulagsnefnd hvetur til þess að fundin verði varanleg lausn á eldsneytisafgreiðslu norðan Mývatns.
Getum við bætt efni þessarar síðu?