Fara í efni

Tómstundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðvum Þingeyjarsveitar

Tómstundaleiðbeinandi vinnur með börnum og unglingum 10-16 ára í félagsmiðstöðvastarfi. Um er að ræða tímavinnu en vinnutími getur verið breytilegur og fer að mestu fram milli kl. 17-22 tvo virka daga í viku, annars vegar í Ýdölum og hins vegar í Reykjahlíð. 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Umsækjendur þurfa að vera eldri en 18 ára og hafa áhuga á því að starfa með börnum og unglingum
  • Menntun sem nýtist í starfi eða fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum er kostur
  • Frumkvæðni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og góð samstarfshæfni
  • Hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og vilji til að taka þátt í breytingum
  • Almenn tölvukunnátta og geta til að miðla upplýsingum
  • Gott vald á íslenskri tungu
  • Hreint sakarvottorð

Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnhildur Hinriksdóttir, verkefnastjóri æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála og umsóknir sendist til gunnhildur@thingeyjarsveit.is

Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst 2026

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Getum við bætt efni þessarar síðu?