Þingeyjarsveit leitar að öflugum leiðtoga í starf sveitarstjóra
SVEITARSTJÓRI
SVEITARSTJÓRI
Þingeyjarsveit leitar að öflugum leiðtoga í starf sveitarstjóra.
Leitað er að kraftmiklum, jákvæðum og drífandi einstaklingi sem er tilbúinn að vinna að skemmtilegum og krefjandi verkefnum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur og ábyrgð á framfylgd stefnu sveitarstjórnar
- Náið samstarf við sveitastjórn og nefndir, undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum
- Annast samskipti við íbúa, stofnanir, fyrirtæki og önnur sveitarfélög og gætir hagsmuna sveitarfélagsins út á við
- Ábyrgð á stjórnsýslu, stefnumótun og mannauðsmálum
- Vinna að hagsæld svæðisins
- Önnur verkefni í samstarfi við sveitarstjórn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af rekstri, stjórnun, fjármálum, stefnumótun og mannauðsmálum
- Góð þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
- Brennandi áhugi á byggðamálum, eflingu atvinnulífs og samfélagsins
- Mikil færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, leiðtogahæfni og lausnamiðuð hugsun
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
- Reynsla af störfum á sveitastjórnarstigi æskileg
Þingeyjarsveit er landmesta sveitarfélag landsins og státar af einstakri náttúrufegurð og náttúruauðlindum. Sveitarfélagið er sannkölluð útivistarparadís.
Atvinnulífið er öflugt með fjölbreyttum möguleikum, m.a. í ferðaþjónustu, landbúnaði, matvælaframleiðslu og nýsköpun tengdri orkuvinnslu. Aðstaða er fyrir hendi fyrir störf án staðsetningar.
Þingeyjarsveit leggur áherslu á umhverfismál og sjálfbæra nýtingu auðlinda ásamt blómlegu mannlífi. Í sveitarfélaginu fer fram metnaðarfullt skólastarf á öllum skólastigum. Þingeyjarsveit er ákjósanleg til búsetu fyrir þá sem kjósa gott mannlíf, friðsæld í fagurri sveit með nálægð við stóra þéttbýlisstaði.
Við bjóðum
- Krefjandi og fjölbreytt starf í lifandi samfélagi
- Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun sveitarfélagsins
- Starf í samstarfi við öflugt teymi kjörinna fulltrúa og starfsfólks
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is.
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2026
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.