Námskeið í tæknilæsi fyrir 60 ára og eldri

Tæknilæsi fyrir eldra fólk (60 ára og eldri).

Á námskeiðinu verður auk almennrar tölvunotkunar kennd notkun snjalltækja (síma og spjaldtölva), fjallað um rafræn skilríki og notkun þeirra, rafræn samskipti (tölvupóstur og notkun annarra samskiptamiðla), netverslun, notkun heimabanka o.fl.  

Hvert námskeið er átta klukkustundir í staðnámi og eru kennd í fjórum tveggja klukkustunda lotum. Kennslan er einstaklingsmiðuð, á hverju námskeiði eru að hámarki átta manns á hvern leiðbeinanda.

Námskeiðin eru ókeypis fyrir þátttakendur.

Skráning á námskeiðin er á www.hac.is  og í s: 464-5100. Nánari upplýsingar veitir Hilmar Valur í s: 464-5100

Þátttakendur geta komið með snjallsíma, spjaldtölvur eða fartölvur óski þau þess en einnig verða spjaldtölvur á staðnum til afnota.