Laus staða matráðar í Stórutjarnaskóla
Óskað er eftir matráði í 90% stöðu við Stórutjarnaskóla.
HELSTU VIÐFANGSEFNI OG ÁBYRGÐ
- hefur yfirumsjón með starfsemi í eldhúsi og annast almenn eldhússtörf
- annast matseld í samræmi við ráðleggingar landlæknis um mataræði barna í leik- og grunnskólum
- sér um innkaup matvæla, frágang þeirra og geymslu á þeim
- annast tilfallandi önnur störf s.s. í tengslum við fundi, aðrar samkomur og uppbrotsdaga
HÆFNIKRÖFUR
- matartækninám
- þarf að hafa góða samskiptahæfni og kappkosta að sýna nemendum og samstarfsfólki virðingu í hvívetna
- þekking/reynsla af daglegum rekstri mötuneytis
- þekking/reynsla af næringarfræði, sérfæði, gæðum og fjölbreytileika matar er nauðsynleg
Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik,- grunn- og tónlistarskóli með um 45 nemendur frá eins árs til 16 ára aldurs. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði. Skólinn er Grænfánaskóli, Heilsueflandiskóli, vinnur eftir jákvæðri agastefnu og er að innleiða leiðsagnarnám. Lögð er áhersla á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólans og er skólinn í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2025.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband í síma 4643220/8483547 eða í gegnum netfangið birnada@storutjarnaskoli.is 
Umsóknir skulu sendar á netfangið birnada@storutjarnaskoli.is 
Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og yfirlit yfir námsferil.