Fara í efni

Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit

33. fundur 17. febrúar 2026 kl. 14:30 - 16:30 í Þingeyjarskóla
Nefndarmenn
  • Gunnhildur Hinriksdóttir
  • Anna Bragadóttir
  • Sigurbjörn Árni Arngrímsson
  • Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir
  • Böðvar Baldursson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Lára Ingvarsdóttir
Starfsmenn
  • Hjördís Sigríður Albertsdóttir
Fundargerð ritaði: Hjördís Albertsdóttir
Dagskrá

1.Janusarverkefni - heilsuefling eldri borgara

Málsnúmer 2510017Vakta málsnúmer

Fyrir fræðslu- og velferðarnefnd liggur að fara yfir áætlun frá Janusi heilsueflingu á pakka 2 í tilboði frá þeim og taka ákvörðun út frá þeim upplýsingum.
Nefndinni líst vel á þessa áætlun og felur sviðsstjóra og verkefnastjóra að vinna málið áfram miðað við umræður á fundinum.

2.Urðarbrunnur - örnefnaskráning

Málsnúmer 2601047Vakta málsnúmer

Til kynningar er verkefnið Urðarbrunnur um örnafnaskráningu í Þingeyjarsýslum.
Nefndin lýsir ánægju sinni með verkefnið og felur sviðsstjóra að ræða við skólastjórnendur um að fá kynningu frá Urðarbrunni til mögulegs samstarfs.

3.Stórutjarnaskóli - Birna Davíðsdóttir skólastjóri - uppsögn

Málsnúmer 2602015Vakta málsnúmer

Fyrir nefndinni liggur uppsögn skólastjóra Stórutjarnaskóla.
Nefndin þakkar Birnu fyrir góð störf í þágu Stórutjarnaskóla.

4.Yfirferð sviðsstjóra fjölskyldusviðs

Málsnúmer 2602018Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fer yfir stöðu verkefna á fjölskyldusviði.
Nefndin þakkar sviðsstjóra fyrir greinagóða yfirferð á verkefnum fjölskyldusviðs.

5.Þingeyjarskóli, Reykjahlíðarskóli, Stórutjarnaskóli - skólastarf 2025-2026

Málsnúmer 2510018Vakta málsnúmer

Nanna og Jóhann Rúnar, skólastjórnendur fara yfir skólastarf leik-, grunn- og tónlistardeilda Þingeyjarskóla.
Nefndin þakkar skólastjórnendum í Þingeyjarskóla fyrir greinagóða yfirferð á skólastarfinu. Starfið gengur vel og nefndin hrósar bæði starfsfólki skóla og skólabílstjórum fyrir sín störf.

Fundi slitið - kl. 16:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?