Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit
Dagskrá
1.Framkvæmdarsjóður ferðamannastaða - auglýst eftir styrktarumsóknum
Málsnúmer 2510010Vakta málsnúmer
Fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur auglýsing frá framkvæmdasjóði ferðamannastaða eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2026. Umsóknarfrestur er til kl. 13:00, 4. nóvember nk.
Nefndin felur sviðsstjóra að vinna áfram þær umsóknir sem þegar eru í vinnslu en þær eru Þeistareykir, Aldeyjarfoss, Höfði og göngu- og hjólreiðastígur í kringum Mývatn. Nefndin felur sviðsstjóra að auglýsa á vef sveitarfélagsins umsóknarfrest fyrir styrki frá framkvæmdasjóði ferðamanna og aðstoða þá sem vilja sækja um.
2.Atvinnustefna Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2503064Vakta málsnúmer
Unnið að gerð atvinnustefnu Þingeyjarsveitar. Minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og famkvæmdasviðs lagt fram.
Nefndin felur sviðsstjóra að setja saman uppkast fyrir næsta fund nefndarinnar. Nefndin leggur áherslu á að atvinnustefnan sé skýr og hnitmiðuð svo auðvelt verði að vinna eftir henni.
3.Búnaðarstyrkur - Minka- og refaveiðimenn
Málsnúmer 2510025Vakta málsnúmer
Nefndin fór yfir reglur um úthlutun styrkja til búnaðarkaupa minka- og refaveiðifólks sem sveitarfélagið á að úthluta árlega sbr. 4. grein reglna um refa- og minkaveiðar.
Nefndin felur sviðsstjóra að auglýsa eftir umsóknum um búnaðarstyrkinn á heimasíðu sveitarfélagsins og sérstaklega til veiðimanna í gegnum tölvupóst.
Fundi slitið - kl. 11:30.