Fara í efni

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit

31. fundur 16. nóvember 2026 kl. 10:00 - 12:16 í Þingey
Nefndarmenn
  • Snæþór Haukur Sveinbjörnsson
  • Nanna Marteinsdóttir
  • Karl Magnússon
  • Sæmundur Þór Sigurðsson
  • Soffía Kristín Jónsdóttir
  • Jónas Þórólfsson
Starfsmenn
  • Katrín Sigurjónsdóttir
Fundargerð ritaði: Katrín Sigurjónsdóttir
Dagskrá
Daði Lange, umhverfisfulltrúi, sat fundinn undir liðum 3 og 4.

1.Atvinnustefna Þingeyjarsveitar

Málsnúmer 2503064Vakta málsnúmer

Fyrir nefndinni liggja drög að Atvinnustefnu Þingeyjarsveitar 2027-2035 ásamt tímasettri aðgerðaáætlun til næstu þriggja ára.
Nefndin vísar drögum að atvinnustefnu og aðgerðaráætlun til umsagnar og yfirferðar í skipulagsnefnd og sveitarstjórn á milli funda.
Nefndin stefnir á að ljúka vinnu við atvinnustefnuna á næsta fundi þann 7. desember.

Samþykkt samhljóða.

2.Haust-Þing - uppskeruhátíð

Málsnúmer 2610053Vakta málsnúmer

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd stefnir á að halda Haust-Þing, uppskeruhátíð Þingeyjarsveitar að hausti 2027. Hátíðin er tækifæri fyrir íbúa Þingeyjarsveitar kynna sína framleiðslu og selja sína vöru. Horft er sérstaklega til heimaframleiðslu á t.d. á kjötafurðum, silungi, grænmeti, sultum, handverki o.fl.



Nefndin heldur utan um þróun verkefnisins ásamt sveitarstjóra
Lagt fram til kynningar.

3.Refaveiðar 2026-2028 - áætlun sveitarfélaga

Málsnúmer 2603057Vakta málsnúmer

Daði Lange, umhverfisfulltrúi, kom inn á fundinn kl. 10:15.



Skv.erindisbréfi fer nefndin með umsjón með refa- og minkaeyðingu í sveitarfélaginu skv. reglugerð nr. 437/1995.

Fyrir nefndinni liggja til upplýsinga upplýsingar um refa- og minkaveiðar 2025-2026 í Þingeyjarsveit skv. skilagrein til Náttúruverndarstofnunar. Á árinu 2026 hafa veiðst alls 337 refir og 317 minkar í sveitarfélaginu.



Nefndin felur sveitarstjóra að eiga samtal við Náttúruverndarstofnun um styrk vegna refa- og minkaeyðingar á verndarsvæði Mývatns og Laxár og í Vatnajökulsþjóðgarði.

Þingeyjarsveit er mjög landstórt sveitarfélag og yfirferð vegna vargeyðingar mikil. Mjög mikilvægt er að stemma stigu við fjölgun vargs. Nefndin felur umhverfisfulltrúa að leita eins mikillar hagkvæmni í málaflokknum eins og hægt er.

Samþykkt samhljóða.

4.Landbótaáætlun - tilkynning um þörf á endurskoðun austurafréttar Skútustaðahrepps og vesturafréttar Bárðdæla

Málsnúmer 2611015Vakta málsnúmer

Núgildandi landbótaáætlanir fyrir austurafrétt úr landi Reykjahlíðar og vesturafrétt Bárðdæla, sem unnar voru á grundvelli reglugerðar um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu, halda gildi út desember 2026.

Frestur til að skila nýrri landbótaáætlun er 23. janúar 2027.



Daði vék af fundi kl. 10:53.
Nefndin felur umhverfisfulltrúa að gera drög að nýrri landbótaáætlun fyrir báða afréttina og leggja fyrir nefndina á fundi þann 12. janúar 2027.

Samþykkt samhljóða.

5.Vegagerðin - umsóknir vegna styrkvega

Málsnúmer 2404043Vakta málsnúmer

Þingeyjarsveit hefur á undan­förnum árum sent inn umsókn í styrk­vega­sjóð hjá Vega­gerð­inni. Styrk­vegir eru samgöngu­leiðir sem ekki falla undir skil­grein­ingar vega skv. lögum en skulu vera opnir allri almennri umferð.
Nefndin felur sveitarstjóra að auglýsa eftir ábendingum/umsóknum frá aðilum í Þingeyjarsveit sem hafa áhuga á að fara í lagfæringar á samgönguleiðum sem falla undir skilgreiningar Vegagerðarinnar.

6.Fjárlög 2027 - áætluð hækkun kílómetragjalds

Málsnúmer 2611024Vakta málsnúmer

Í frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027, er lagt til að kílómetragjald á ökutæki hækki um 15,9% milli ára. Hækkunin skiptist annars vegar í 5,2% almenna verðlagsuppfærslu samkvæmt forsendum fjárlagafrumvarpsins og hins vegar 4 milljarða króna viðbótartekjuöflun ríkissjóðs.
Atvinnu og nýsköpunarnefnd mótmælir 15.9% fyrirhugaðri hækkun á kílómetragjaldi. Þetta mun hafa í för með sér dýrari framleiðslu og aukinn flutningskostnað í öllum atvinnugreinum í Þingeyjarsveit. Gjaldið tekur ekki tillit til mismunandi aðstæðna sveitarfélaga. Þingeyjarsveit er landmesta sveitarfélag landsins, sveitarfélagið er dreifbýlt og vegalengdir því oft langar. Þessi hækkun á kílómetragjaldi mun því bitna þungt á atvinnurekendum og íbúum Þingeyjarsveitar.

Samþykkt samhljóða.

7.Fjárlög 2027 - áætluð hækkun á úrvinnslugjaldi vegna heyrúlluplasts

Málsnúmer 2611025Vakta málsnúmer

Í 27. gr. frumvarps til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027, þingskjali 2, 2. máli á 158. löggjafarþingi, er lagt til að úrvinnslugjald á heyrúlluplast samkvæmt viðauka I við lög nr. 162/2002 um úrvinnslugjald hækki úr 65 kr. á hvert kílógramm í 125 kr. á hvert kílógramm. Fyrirhuguð hækkun nemur 60 kr. á hvert kílógramm eða um 92,3%. Úrvinnslugjaldið leggst á vöruna við innkaup og hækkar því verð vörunnar til bænda.
Atvinnu og nýsköpunarnefnd mótmælir fyrirhugaðri 92% hækkun úrvinnslugjalds á heyrúlluplast, úr 65 í 125 kr./kg.  Heyrúlluplast er nauðsynlegt aðfang í landbúnaði. Þessi hækkun mun leiða til hærri framleiðslukostnaðar og draga úr samkeppnishæfni íslensks landbúnaðar.

Samþykkt samhljóða.

8.Mýsköpun - kynning á stöðu uppbyggingar á Þeistareykjum

Málsnúmer 2610054Vakta málsnúmer

Á fundinn mætti Ingólfur Bragi Gunnarsson, framkvæmdastjóri MýSköpunar ehf., og kynnti stöðu á fyrirhugaðri uppbyggingu fyrirtækisins á Þeistareykjum.

MýSköpun ehf. og Landsvirkjun hafa undirritað viljayfirlýsingu um fyrirhugaða afhendingu raforku og nýtingu varma frá Þeistareykjastöð vegna uppbyggingar hátækniframleiðslu á náttúrulegu astaxantíni í nágrenni aflstöðvarinnar.

Nefndin þakkar Ingólfi fyrir góða kynningu og yfirferð á stöðu mála hjá MýSköpun ehf.
Nefndin lýsir yfir ánægju sinni með framgang mála og uppbyggingaráform fyrirtækisins.

9.Mývatnsstofa - fréttabréf

Málsnúmer 2609045Vakta málsnúmer

Fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur til kynningar fréttabréf Mývatnsstofu frá 22. október sl.
Lagt fram til kynningar.

10.Flugklasinn Air66N - greinargerð um starfið

Málsnúmer 2605046Vakta málsnúmer

Fyrir nefndinni liggur til kynningar greinargerð um starf Flugklasans Air66N undanfarna mánuði.
Lagt fram til kynningar.

Nefndin óskar eftir kynningu á Flugklasanum á næstu fundum.

Fundi slitið - kl. 12:16.

Getum við bætt efni þessarar síðu?