Fjárlög 2027 - áætluð hækkun á úrvinnslugjaldi vegna heyrúlluplasts
Málsnúmer 2611025
Vakta málsnúmerAtvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 31. fundur - 16.11.2026
Í 27. gr. frumvarps til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027, þingskjali 2, 2. máli á 158. löggjafarþingi, er lagt til að úrvinnslugjald á heyrúlluplast samkvæmt viðauka I við lög nr. 162/2002 um úrvinnslugjald hækki úr 65 kr. á hvert kílógramm í 125 kr. á hvert kílógramm. Fyrirhuguð hækkun nemur 60 kr. á hvert kílógramm eða um 92,3%. Úrvinnslugjaldið leggst á vöruna við innkaup og hækkar því verð vörunnar til bænda.
Samþykkt samhljóða.