Fara í efni

Fjárlög 2027 - áætluð hækkun kílómetragjalds

Málsnúmer 2611024

Vakta málsnúmer

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 31. fundur - 16.11.2026

Í frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027, er lagt til að kílómetragjald á ökutæki hækki um 15,9% milli ára. Hækkunin skiptist annars vegar í 5,2% almenna verðlagsuppfærslu samkvæmt forsendum fjárlagafrumvarpsins og hins vegar 4 milljarða króna viðbótartekjuöflun ríkissjóðs.
Atvinnu og nýsköpunarnefnd mótmælir 15.9% fyrirhugaðri hækkun á kílómetragjaldi. Þetta mun hafa í för með sér dýrari framleiðslu og aukinn flutningskostnað í öllum atvinnugreinum í Þingeyjarsveit. Gjaldið tekur ekki tillit til mismunandi aðstæðna sveitarfélaga. Þingeyjarsveit er landmesta sveitarfélag landsins, sveitarfélagið er dreifbýlt og vegalengdir því oft langar. Þessi hækkun á kílómetragjaldi mun því bitna þungt á atvinnurekendum og íbúum Þingeyjarsveitar.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?