Fara í efni

Skólaliði óskast

Reykjahlíðarskóli óskar eftir skólaliða tímabundið í 50 - 75% starf sem fyrst.

Vinnutími getur verið sveigjanlegur milli daga, innan dagvinnumarka (8-16).

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • aðstoða í matartímum nemenda
  • annast gæslu og eftirlit á göngum, fataklefa og matsal
  • sinna frímínútnagæslu úti og inni
  • annast þrif og halda húsnæði skóla hreinu
  • aðstoða við uppröðun og tilfærslu á húsgögnum
  • önnur tilfallandi verkefni sem skólastjóri kann að fela starfsmanni

Hæfniskröfur:

Skólaliði þarf að geta hjálpað börnum í leik og starfi, leiðbeint þeim um góða umgengni auk þess að sjá um ræstingu á skólahúsnæði. Skólaliðar eru í mikilvægu hlutverki sem fyrirmyndir barna, þurfa að geta lesið í aðstæður og brugðist fljótt og vel við þegar þörf er á. Gott er einnig að geta veitt fyrstu hjálp ef slys ber að höndum.

Við leitum af starfsfólki sem:

  • Hefur brennandi áhuga á að starfa með börnum
  • Er jákvætt, lausnamiðað og vill taka þátt i samstarfi og teymisvinnu
  • Hefur góða samskiptafærni og umhyggju fyrir náunganum
  • Hefur áhuga á skemmtilegu og fjölbreyttu starfi

 

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Umsóknir skulu sendast á netfangið hjordis@reykjahlidarskoli.is Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Hjördís Albertsdóttir, hjordis@reykjahlidarskoli.is og í síma 464-4375. Nánari upplýsingar um leikskólann er hægt að finna á https://reykjahlidarskoli.is/

Umsóknarfrestur til 20. júní

Getum við bætt efni þessarar síðu?