Ræsting og aðstoð á deild
13.06.2025
Leikskólinn Ylur auglýsir eftir starfsmanni í 25 – 50% starf frá og með 6. ágúst 2025. Um er að ræða aðstoð inni á deild og ræsting í leikskóla.
Ylur er tveggja deilda leikskóli í Mývatnssveit. Í haust er gert ráð fyrir að um 26 börn verði í leikskólanum á aldrinum 1 – 5 ára en börn eru tekin inn í leikskólann frá 12 mánaða aldri.
Ylur er grænfána- og heilsueflandi leikskóli sem leggur áherslu á leik og útikennslu, unnið er eftir agastefnunni jákvæðum aga. Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Hjördís Albertsdóttir, hjordis@reykjahlidarskoli.is og í síma 464-4375.
Umsóknarfrestur er til 20. júní 2025.