Fara í efni

Leikskólakennari óskast í Krílabæ

Krílabær er önnur tveggja leikskóladeilda Þingeyjarskóla sem er samrekinn leik- og grunnskóli á tveimur starfsstöðvum. Nemendur Krílabæjar eru 6 talsins. Áhersla er lögð á mikil og góð tengsl nemenda, starfsfólks og foreldra, tákn með tali og unnið er eftir stefnunni um jákvæðan aga. Leikskóladeildin býður uppá rólegt og gott vinnuumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans.
  • Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðafólk nemenda.
  • Taka þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við yfirmann.
  • Sinna verkefnum er varða uppeldi og menntun nemenda sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun, uppeldismenntun eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Færni í samskiptum.
  • Frumkvæði í starfi.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta

Við leitum að starfsfólki sem:

  • Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
  • Hefur brennandi áhuga á að starfa með börnum og ber virðingu fyrir þeim
  • Er lausnamiðað og vill taka þátt í teymisvinnu

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf 12. ágúst.
Umsóknarfrestur er til og með 26. júní 2025 og skulu umsóknir berast á netfangið nanna@thingskoli.is

Frekari upplýsingar um störfin veitir Nanna Marteinsdóttir leikskólastjóri Þingeyjarskóla, í gegnum tölvupóst nanna@thingskoli.is og í síma 464-3590/898-0790.

Getum við bætt efni þessarar síðu?