Laus staða aðalbókara
Þingeyjarsveit óskar eftir að ráða metnaðarfullan aðila í starf aðalbókara. Um er að ræða 100% starf sem heyrir undir sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Aðalbókari ber ábyrgð á bókhaldi Þingeyjarsveitar, stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins. Viðkomandi þarf að vera tilbúin til að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf í skemmtilegu starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
- Yfirumsjón með bókhaldi sveitarfélagsins
- Dagleg stýring og bókhaldsvinna
- Afstemmingar, uppgjör, frágangur, gagnavinnsla og skýrsluskil
- Áætlanagerð í samvinnu við stjórnendur sviða
- Innra eftirlit í samráði við sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Upplýsingagjöf til stjórnenda
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við næsta yfirmann
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða viðurkenndur bókari skilyrði
- Þekking og reynsla af bókhaldsstörfum er skilyrði þ.m.t. afstemmingar og uppgjör
- Góð færni í excel skilyrði
- Þekking á Navision BC æskileg
- Nákvæmni, samviskusemi og skipulagshæfileikar
- Hæfni til að greina gögn og upplýsingar
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga, er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni
- Jákvæðni og hæfni til samstarfs og samskipta sem og lausnamiðuð hugsun
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
Þingeyjarsveit er landmesta sveitarfélag landsins og státar af einstakri náttúrufegurð og náttúruauðlindum. Sveitarfélagið er sannkölluð útivistarparadís. Atvinnulífið er öflugt með fjölbreyttum möguleikum, m.a. í ferðaþjónustu, landbúnaði og matvælaframleiðslu. Aðstaða er fyrir hendi fyrir störf án staðsetningar. Þingeyjarsveit leggur áherslu á umhverfismál og sjálfbæra nýtingu auðlinda ásamt blómlegu mannlífi. Í sveitarfélaginu fer fram metnaðarfullt skólastarf á öllum skólastigum. Þingeyjarsveit er ákjósanleg til búsetu fyrir þá sem kjósa gott mannlíf, friðsæld í fagurri sveit með nálægð við stóra þéttbýlisstaði.
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is
Umsóknarfrestur er til 6. júlí. 2025
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í haust eða eftir samkomulagi. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Þingeyjarsveit áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.