Umhverfisnefnd
Dagskrá
1.Jarðgerðarvélar - pantanir
Málsnúmer 2602030Vakta málsnúmer
Kynning á stöðu afhendinga á jarðgerðarvélum og framhald verkefnisins. Umhverfisfulltrúi fór yfir stöðu mála
Umhverfisfulltrúi fór yfir stöðuna á afhendingu á jarðgerðarvélunum. Almennt mikil ánægja með vélarnar en enn eru 80 vélar eftir. Nefndin þakkar fyrir upplýsingarnar og hvetur íbúa sveitarfélagsins til að fara á heimasíðu Þingeyjarsveitar og sækja um vél í gegnum þjónustugáttina.
2.Sorpútboð Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2503045Vakta málsnúmer
Kynning á stöðu á sorpútboði og næstu skrefum. Umhverfisfulltrúi fór yfir stöðuna.
Umhverfisfulltrúi fór yfir stöðuna á sorpútboði sveitarfélagsins. Ekki næst að senda gögnin í yfirlestur og útboð fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Stefnt skal á að koma drögum að tilboðsskrá og verklýsingu fyrir næsta umhverfisnefndarfund, svo sem mest af gögnum sé tilbúið fyrir næstu sveitarstjórn.
Fundi slitið - kl. 14:00.