Fara í efni

Umhverfisnefnd

33. fundur 05. febrúar 2026 kl. 15:00 - 16:00 í Þingey
Nefndarmenn
  • Árni Pétur Hilmarsson
  • Sigrún Jónsdóttir
  • Guðrún Sigríður Tryggvadóttir
  • Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
Starfsmenn
  • Daði Lange Friðriksson
Fundargerð ritaði: Daði Lange
Dagskrá

1.Moltugerðarvélar - Útfærsla á dreifingu moltuvéla.

Málsnúmer 2505077Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggja hugmyndir að útfærslu vegna útdeilingar moltugerðarvéla sem taka í nótkun í sveitarfélaginu og kynningarefni þeim tengdum.
Nefndin hefur sett saman texta til kynningar á heimasíðu Þingeyjarsveitar um útdeilingu moltuvéla. Nefndin felur umhverfisfulltrúa frekari útfærslu og uppsetningu í samræmi við umræður á fundinum. Íbúar munu sækja um vélarnar í gegnum þjónustugátt Þingeyjarsveitar.

Samþykkt samhljóða.

2.Úrvinnslusjóður - fyrirkomulag greiðslna fyrir sérstaka söfnun sveitarfélaga árið 2026

Málsnúmer 2601052Vakta málsnúmer

Fyrir Umhverfisnefnd liggur erindi frá Úrvinnslusjóði varðandi fyrirkomulag greiðslna fyrir sérstaka söfnun sveitarfélaga árið 2026.
Nefndin þakkar fyrir upplýsingarnar. Helsta breyting greiðslna á milli ára er sú að á árinu 2026 verður greitt mánaðarlega, í lok næsta mánaðar eftir að söfnun fór fram. Þannig verður greitt fyrir janúar 2026 í lok febrúar 2026.

3.SSNE - Leiðarvísir fyrir loftslagsstefna Norðurlands eystra

Málsnúmer 2601024Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggur kynning á leiðarvísi fyrir loftslagsstefnu Þingeyjarsveitar. Arnheiður Rán Almarsdóttir kemur inn á fundinn og kynnir leiðarvísinn og eftirfylgni.
Nefndin þakkar Arnheiði Rán fyrir kynninguna og góða vinnu við aðgerðaráætlun.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?