Laugafiskur - athugasemdir frá íbúum og eigendum fasteigna vegna starfsemi fyrirtækisins
Málsnúmer 2510060
Vakta málsnúmerUmhverfisnefnd - 30. fundur - 13.11.2025
Tekin eru fyrir bréf frá Magna Lögmönnum ehf, Haraldi R. Sverrissyni og Símoni H. Sverrissyni vegna fiskþurrkunar Samherja á Laugum í Reykjadal.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 68. fundur - 13.11.2025
Á 30. fundi umhverfisnefndar sem haldinn var 13. nóvember var eftirfarandi bókað og samþykkt varðandi athugasemdir frá íbúum og eigendum fasteigna í nágrenni Laugafisks:
"Umhverfisnefnd þakkar bréfriturum fyrir að vekja athygli á málinu. Nefndin tekur undir áhyggjur bréfritara vegna lyktar- og hávaðamengunar frá fiskþurrkunarverksmiðju Samherja á Laugum í Reykjadal. Nefndin lýsir jafnframt ánægju sinni með þær aðgerðir sem fyrirtækið hefur lagst í til að draga úr mengun. Fiskþurrkun hefur verið starfrækt á Laugum síðan á áttunda áratugnum og hefur veitt fjölda fólks atvinnu í gegnum tíðina, en nú vinna um 15 manns í verksmiðjunni. Fyrirtækið starfar eftir starfsleyfi sem Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra gefur út. Við endurnýjun leyfisins 2023 voru gerðar athugasemdir við lyktar- og hávaðamengun frá fyrirtækinu og fyrirtækinu gefinn frestur til að lagfæra frávikin. Fyrirtækið hefur tekið þessar athugasemdir alvarlega og ráðist í framkvæmdir til þess að minnka bæði lykt og hávaða. Umhverfisnefnd hvetur Samherja til að kynna fyrir íbúum þær framkvæmdir sem ráðist hefur verið í og mögulegan ávinning af þeim. Einnig hvetur umhverfisnefnd, Samherja og Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra til þess að tryggja að opið vöktunarferli verði með ávinningi framkvæmdanna.
Umhverfisnefnd bendir bréfritum á að hvorki útgáfa né eftirlit með starfsleyfum eru á borði nefndarinnar eða sveitarfélagsins. Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra gefur út og hefur eftirlit með starfsleyfiskyldum aðilum. Það er því eðlilegt, hafi bréfritarar athugasemd við starfsleyfi fyrirtækisins, að slíkum athugasemdum sé beint til Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra eða fyrirtækisins sjálfs.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að haldinn verði íbúafundur hið fyrsta um málefni fiskþurrkunarverksmiðju Samherja á Laugum. Á þann fund verði boðaðir fulltrúar Samherja og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra."
Jafnframt barst sveitarfélaginu bréf frá Magna lögmannsstofu f.h. umbjóðenda með athugasemdum um sama mál.

Sveitarstjórn tekur undir bókun umhverfisnefndar og gerir að sinni og felur jafnframt sveitarstjóra að boða til umrædds íbúafundar sem haldinn verður 25.nóvember.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Umhverfisnefnd bendir bréfritum á að hvorki útgáfa né eftirlit með starfsleyfum eru á borði nefndarinnar eða sveitarfélagsins. Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra gefur út og hefur eftirlit með starfsleyfiskyldum aðilum. Það er því eðlilegt, hafi bréfritarar athugasemd við starfsleyfi fyrirtækisins, að slíkum athugasemdum sé beint til Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra eða fyrirtækisins sjálfs.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að haldinn verði íbúafundur hið fyrsta um málefni fiskþurrkunarverksmiðju Samherja á Laugum. Á þann fund verði boðaðir fulltrúar Samherja og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.