Fara í efni

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit

1. fundur 22. júní 2026 kl. 16:00 - 18:00 í Þingey
Nefndarmenn
  • Dóra Rún Kristjánsdóttir
  • anna dagbjört andrésdóttir
  • Sigurlína Tryggvadóttir
  • Jón Sverrir Sigtryggsson
  • Hermann Aðalsteinsson
Starfsmenn
  • Gunnhildur Hinriksdóttir
Fundargerð ritaði: Gunnhildur Hinriksdóttir
Dagskrá

1.Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd - kosning varaformanns

Málsnúmer 2606032Vakta málsnúmer

Fyrir íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd liggur að kjósa varaformann.
Formaður leggur til að Sigurlína Tryggvadóttir verði varaformaður

2.Þingeyjarsveit - samningar við ungmenna-, íþrótta- og æskulýðsfélög

Málsnúmer 2209058Vakta málsnúmer

Til afgreiðslu nýrrar nefndar. Samningar við íþróttafélögin hafa verið í vinnslu og þarf að fullgera þá samninga.
Verkefnastjóri fór yfir þau samningsdrög sem hafa verið unnin og hugmyndir að útfærslu beinna fjárstyrkja. Nefndarfólk kynnir sér í framhaldinu útfærslu annarra sveitarfélaga og vinnur málið áfram á næsta fundi.

3.Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd - Önnur mál

Málsnúmer 2606041Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri fer yfir stöðuna og þau verkefni sem hafa verið á hennar borðum.
Nefndin þakkar verkefnastjóra fyrir upplýsingarnar.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?