Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit
Dagskrá
1.Öryggi barna í leikskólum Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2603068Vakta málsnúmer
Fyrir nefndinni liggur erindi frá foreldri leikskólabarna þar sem áhyggjum og vangaveltum af öryggi barna í leikskólum er komið á framfæri vegna frétta af meintum kynferðisbrotum gegn leikskólabörnum í nokkrum leikskólum á landinu.
Nefndin þakkar fyrir erindið. Það er verið að vinna að því að gera skólaumhverfið öruggara fyrir bæði starfsfólk og nemendur til að lágmarka áhættu.
2.Skólaforðun - Fræðslunefnd
Málsnúmer 2603056Vakta málsnúmer
Fyrir nefndinni liggja drög að reglum um skólasókn í grunnskólum Þingeyjarsveitar. Einnig liggur fyrir minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs um skólaforðun og viðbrögð og hlutverk nefndar og sveitarfélags er kemur að úrræðum fyrir nemendur.
Nefndin er ánægð með að settar séu sérstakar reglur um skólasókn og felur sviðsstjóra að vinna reglurnar áfram með stjórnendum og skólaþjónustu í samræmi við umræður á fundinum. Nefndin samþykkir dröginn með umræddum breytingum. Nefndin telur þörf fyrir skýrar verklagsreglur í kringum mál af þessu tagi.
3.Grunnskólarnir - Skóladagatal 2026 - 2027
Málsnúmer 2604115Vakta málsnúmer
Fyrir nefndinni liggur að samþykkja skóladagatöl grunnskólanna í Þingeyjarsveit fyrir skólaárið 2026 - 2027
Nefndin samþykkir skóladagatöl grunnskólanna fyrir skólaárið 2026- 2027.
4.Leikskólarnir - skóladagatal 2026 -2027
Málsnúmer 2604116Vakta málsnúmer
Lögð fram til kynnningar eru skóladagatöl leikskóla Þingeyjarsveitar fyrir skólaárið 2026 -2027.
Nefndin þakkar fyrir framlögð drög að leikskóladagatölum 2026-2027.
5.Grunnskólar - útisvæði, leiktæki
Málsnúmer 2604104Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri kynnir stöðu mála á framkvæmdum á skólalóðum fyrir fræðslu og velferðarnefnd.
Nefndin þakkar kynninguna.
6.Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - yfirferð
Málsnúmer 2602018Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir helstu verkefni mánaðarins.
Nefndin þakkar yfirferðina.
7.Önnur mál - Fræðslu- og velferðarnefnd
Málsnúmer 2604124Vakta málsnúmer
Hanna Berglind vill koma á framfæri að hugsa þurfi lóðaframkvæmdir í heild við Stórutjarnaskóla með tilliti til bæði leik- og grunnskólalóðar.
Einnig vill hún að hugsað verði til þess að aðkoma að Tjörnum verði færð og gerð verði bílastæði fyrir gesti Tjarna vestan við Tjarnir.
Að lokum vill Hanna Berglind óska eftir því að Tjarnaskjóli sé úthlutaðir nægir fjármunir fyrir nauðsynlegum húsgögnum í nýtt leikskólahúsnæði. Húsgögn eru orðin gömul og lúin og mörg hver frá stofnun leikskólans og ákveðin lágmarks endurnýjun sem þarf að eiga sér stað.
Einnig vill hún að hugsað verði til þess að aðkoma að Tjörnum verði færð og gerð verði bílastæði fyrir gesti Tjarna vestan við Tjarnir.
Að lokum vill Hanna Berglind óska eftir því að Tjarnaskjóli sé úthlutaðir nægir fjármunir fyrir nauðsynlegum húsgögnum í nýtt leikskólahúsnæði. Húsgögn eru orðin gömul og lúin og mörg hver frá stofnun leikskólans og ákveðin lágmarks endurnýjun sem þarf að eiga sér stað.
Nefndin þakkar fyrir ábendingarnar og felur sviðsstjóra að koma þessum málum á framfæri við rétta aðila.
Fundi slitið kl. 16:40
Fundi slitið - kl. 16:30.
F.h. skólastjórnenda, Birna Friðriksdóttir
F.h. starfsfólks leik- og grunnskóla,
Hanna Berglind Jónsdóttir
Formaður setti fund