Fara í efni

Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit

39. fundur 09. nóvember 2026 kl. 14:30 - 17:45 í Þingey
Nefndarmenn
  • Þórunn Sigtryggsdóttir
  • Oddur Kári Ómarsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Anna Bragadóttir
  • Jóna Ósk Antonsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sæmundur Þór Sigurðsson
  • Freydís Anna Ingvarsdóttir
  • Snorri Már Snorrason
  • Nína Björg Sæmundsdóttir
Starfsmenn
  • Hjördís Sigríður Albertsdóttir
Fundargerð ritaði: Hjördís Albertsdóttir
Dagskrá
Fyrir hönd skólastjórnenda: Hulda Aðalbjarnardóttir, Reykjahlíðarskóla
Fyrir hönd kennara og starfsfólks leikskóla: Kristjana Eysteinsdóttir, Þingeyjarskóla.

Boðaðar en fjarverandi: Hildur Rós, Þingeyjarskóla og Guðrún Þórhallsdóttir, Stórutjarnaskóla.

1.Þingeyjarskóli - erindi frá nemendum á yngsta stigi

Málsnúmer 2610071Vakta málsnúmer

Fyrir nefndinni liggur erindi frá nemendum á yngsta stigi í Þingeyjarskóla, ósk um að skoðað verði að bjóða upp á féló fyrir þau aftur.
Nefndin þakkar fyrir erindið og er mjög jákvæð fyrir því að nemendur yngsta stigs fái féló a.m.k. einu sinni á önn. Nefndin leggur til við sviðsstjóra fjölskyldusviðs og verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála að leita lausnar á málinu.

2.Þjóðleikhúsið - leikferð um landið - Laxness eins og hann leggur sig

Málsnúmer 2610063Vakta málsnúmer

Til kynningar er leikferð Þjóðleikhússins um landið fyrir unglingastig skólanna þar sem rauði þráðurinn er kynning á Halldóri Laxness og verkum hans.
Nefndin fagnar framtaki Þjóðleikshússins og hvetur skólana til að taka þátt.

3.Miðstig Þingeyjarskóla - þakklæti til sveitarstjórnar fyrir ný leiktæki

Málsnúmer 2611013Vakta málsnúmer

Fyrir fræðslu- og velferðarnefnd liggur þakklætisbréf frá nemendum miðstigs Þingeyjarskóla fyrir ný leiktæki á skólalóðinni.
Nefndin þakkar fyrir bréfið og þykir ánægjulegt að heyra að upplifun af leiktækjunum sé jákvæð.

4.Leikskólar Þingeyjarsveitar - starfsmannavelta og mannekla

Málsnúmer 2610023Vakta málsnúmer

Til umfjöllunar mönnunarvandi í leikskólum sveitarfélagsins, framhald frá síðasta fundi. Fyrir liggur minnisblað um Kópavogsmódel, Norðurþing og Akureyri og punktar frá fundi sviðsstjóra með stjórnendum og deildarsstjórum um brýnustu aðgerðir og forgangsröðun.
Nefndin telur nauðsynlegt að brugðist verði við alvarlegu ástandi í leikskólum sveitarfélagsins vegna langvarandi manneklu og vísar málinu til sveitarstjórnar.

Nefndin vill leggja áherslu á það að verið er að horfa til tveggja þátta. Annars vegar að draga úr álagi og hins vegar að auka starfsánægju starfsfólks og gera þar með vinnustaðinn eftirsóknarverðari.

Tillögur nefndar:

- Val um 30 tíma gjaldfrjálsa vistun á viku.

- Fjölga starfsdögum úr 6 í 10 daga á ári og þar með auka undirbúning starfsfólks. Leikskólastjórnendur útfæra starfsdaga á skóladagatali.

- Leita leiða til að styðja starfsfólk enn frekar til náms samhliða starfi.

- Íhuga þætti sem geta aukið starfsánægju, s.s. skólastjórnendum veitt aukið svigrúm til viðburða fyrir starfsfólk, afsláttarkort í afþreyingu í sveitarfélaginu (s.s. veitingastaði, baðstaði o.fl.), sértækur fatastyrkur til leikskólastarfsfólks vegna vinnuaðstæðna.

5.Skólastarf 2026-2027 - Yfirferð skólastjóra

Málsnúmer 2609006Vakta málsnúmer

Skólastjóri Reykjahlíðarskóla fer yfir skólastarf í Reykjahlíðarskóla.
Nefndin þakkar Huld Aðalbjarnardóttur, skólastjóra Reykjahlíðarskóla, fyrir greinagóða kynningu á skólastarfinu.

6.Uppsögn fulltrúa úr fræðslu- og velferðarnefnd.

Málsnúmer 2611014Vakta málsnúmer

Fyrir nefndinni liggur póstur frá Jónu Ósk Antonsdóttur, fulltrúa Á-lista í fræðslu- og velferðarnefnd, þar sem hún tilkynnir úrsögn sína úr nefndinni.
Nefndin þakkar Jónu Ósk fyrir samstarfið og leggur til við sveitarstjórn að 1. varamaður Á-lista, Ingibjörg Lukka Stefánsdóttir komi inn í fræðslu- og velferðarnefnd sem aðalmaður.

7.Fræðslu- og velferðanefnd - Yfirferð sviðsstjóra 2026 -2027

Málsnúmer 2609007Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir það helsta af fjölskyldusviði þennan mánuðinn.
Nefndin þakkar sviðsstjóra fyrir greinagóða kynningu.

Fundi slitið - kl. 17:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?