Fara í efni

Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit

36. fundur 20. ágúst 2026 kl. 14:30 - 16:30 í Þingey
Nefndarmenn
  • Þórunn Sigtryggsdóttir
  • Jóna Ósk Antonsdóttir
  • Oddur Kári Ómarsson
  • Freydís Anna Ingvarsdóttir
  • Snorri Már Snorrason
  • Nína Björg Sæmundsdóttir
Starfsmenn
  • Hjördís Sigríður Albertsdóttir
Fundargerð ritaði: Hjördís Albertsdóttir
Dagskrá
Mættir: Þórunn, Freydís Anna, Oddur, Snorri, Nína og Jóna Ósk

Formaður setti fund kl. 14:40

1.Fræðslu- og velferðarnefnd - kosning varaformanns

Málsnúmer 2606029Vakta málsnúmer

Fyrir fræðslu- og velferðarnefnd liggur að kjósa varaformann.
Tvö framboð voru til varaformanns, Jóna Ósk Antonsdóttir og Snorri Már Snorrason. Jóna Ósk var kjörin varaformaður með þremur atvæðum gegn tveimur.

2.Fræðslu- og velferðarnefnd - erindisbréf 2026-2030

Málsnúmer 2608041Vakta málsnúmer

Fyrir fræðslu- og velferðarnefnd liggur til yfirferðar erindisbréf nefndar fyrir kjörtímabilið 2026 -2030.
Nefndin fór yfir erindisbréfið og gerði smávægilegar breytingar sem ætti að tryggja betur aðilum utan skólasamfélagsins aðkomu að málefnum þeim tengdum.

3.Skólastefna Þingeyjarsveitar

Málsnúmer 2209028Vakta málsnúmer

Fyrir nefndinni liggur að skipa stýrihóp um eftirfylgni skólastefnu 2026-2030. Farið yfir skólastefnu Þingeyjarsveitar 2024-2030 og vinnu stýrihóps um eftirfylgni skólastefnu 2024-2026.
Nefndin fór yfir skólastefnu og telur ekki þörf á að stofna nýjan stýrihóp um eftirfylgni skólastefnu að svo stöddu.

4.Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 802002 (útivistartími)

Málsnúmer 2608016Vakta málsnúmer

Fyrir fræðslu- og velferðarnefnd liggur umsagnarbeiðni um drög að frumvarpi um breytingar á barnaverndrarlögum um útivistartíma.

Nefndin telur ekki þörf á umsögn um frumvarpið.

5.Fræðslu- og velferðarnefnd - önnur mál

Málsnúmer 2604124Vakta málsnúmer

a) Fundadagatal

b) Yfirferð sviðsstjóra á stöðu mála á fjölskyldusviði
Fundadagatal: Nefndin óskar eftir því að fundir verði færðir yfir á mánudaga.

Nefndin þakkar sviðsstjóra fyrir góða yfirferð á stöðu mála.

Fundi slitið - kl. 16:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?