Fara í efni
19-22 nóv 2026 Viðburðir Skjólbrekka

Sel-Hótel Mývatn mótið í skák

Þetta er 6 umferða opið alþjóðlegt skákmót, teflt á fjórum dögum, í einum opnum flokki og reiknað til kappskákstiga hjá FIDE. Mótið er opið öllum áhugasömum um skák, bæði ungum sem öldnum. Nú þegar eru þrír innlendir stórmeistarar skráðir til leiks og þar á meðal Vignir Vatnar Stefánsson Íslandsmeistari í skák árið 2025. Auk hans eru Þröstur Þórhallsson og Bragi Þorfinnsson stórmeistarar og enski stórmeistarinn Simon Williams skráðir til leiks. Búast má við að keppendafjöldinn verði yfir 50, sem gerir þetta að stærsta skákviðburði í Þingeyjarsveit frá upphafi.

Opnað var fyrir skráningu í mótið 1. mars 2026 sem fer fram á vef Skákfélagsins Goðans. 

Sjá nánar hér:https://godinn.is/sel-hotel-myvatn-myvatn-ol-open-skakmotid-19-22-november-2026-skraning-i-motid-opnar-i-dag/  

Getum við bætt efni þessarar síðu?