Sálubót hefur kórastarfið á ný!
Söngfélagið Sálubót hefur kórastarfið á ný eftir sumarfrí með aðalfundi í Dalakofanum, miðvikudaginn 23. september og hefst með kvöldverði kl. 19:30 og svo er fyrsta kóræfing haustsins miðvikudaginn 30. september kl. 20 í Þorgeirskirkju.
Spennandi söngár er fram undan með nýjum kórstjóra, Arnhildi Valgarðsdóttur. Nýjir og gamlir kórfélagar hjartanlega velkomnir til þess að koma og vera með okkur í þessum góða félagsskap sem er sannkölluð sálubót sem endurnærir sál og líkama, söngurinn lengir lífið!
Hlökkum til að sjá ykkur!