Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir starfsmönnum.

Leikskólastarfsmanni í afleysingar og/eða í framtíðarstarf.

Skólaliða í 80 – 100% starf.

Við leitum að starfsmönnum sem:

  • Treysta sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
  • Eru lausnamiðaðir
  • Eru sveigjanlegir og með góða samskiptahæfni
  • Eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og sýna/búa yfir frumkvæði
  • Hafa metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni
  • Vilja taka þátt í samstarfi og teymisvinnu
  • Bera virðingu fyrir börnum og hafa áhuga á að starfa með þeim

 

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra.

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is