Fara í efni

Útrýming malarvega

Málsnúmer 2606014

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 82. fundur - 25.06.2026

Lagt var fram til kynningar minnisblað um útrýmingu malarvega á Norðausturlandi, unnið af Eflu fyrir SSNE - Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra. Í minnisblaðinu er fjallað um stöðu og umfang malarvega í landshlutanum, forsendur uppbyggingar, mögulegar útfærslur og áætlaðan kostnað við að leggja bundið slitlag á viðkomandi vegi.

Í kafla um Þingeyjarsveit kemur fram að í sveitarfélaginu eru um 10 tengivegir með samtals lengd um 140 km auk umfangsmikils nets héraðsvega, og að þörf sé á verulegum endurbótum með tilliti til umferðar og öryggis.
Til máls tók: Knútur.

Lagt fram til kynningar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?