Fara í efni

Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026

Málsnúmer 2603018

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 82. fundur - 25.06.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá sýslumanninum á Norðurlandi eystra þar sem óskað er samstarfs við sveitarfélög í aðdraganda kosninga um þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer 29. ágúst nk. Einnig er óskað upplýsinga um möguleg kjörstjóraefni til starfa við utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn þakkar erindið og samþykkir að ganga til samstarfs við sýslumanninn á Norðurlandi eystra í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Sveitarstjórn leggur áherslu á gott aðgengi íbúa að utankjörfundaratkvæðagreiðslu og að það verði með sama hætti og við sveitarstjórnarkosningar, þ.e. kosið verði á skrifstofu sveitarfélagsins í Þingey, að Hlíðavegi 6 í Mývatnssveit og á Stórutjörnum. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá sveitarfélaginu frá 17. ágúst en hjá sýslumannsembættinu frá 27. júlí.
Sveitarstjórn felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að semja við möguleg kjörstjóraefni og senda niðurstöður til sýslumannsins á Norðurlandi eystra.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?