Kvenfélag Mývatnssveitar og Umf. Efling standa sameiginlega fyrir hátíðardagskrá þann 17. júní í Skjólbrekku í Mývatnssveit og hefst hún kl. 14:00. Dagskráin verður nokkuð hefðbundin með hátíðarræðu, ávarpi Fjallkonu, afhendingu Menningarverðlauna Þingeyjarsveitar og tónlistaratriði. Þá verður sitthvað á dagskrá fyrir börnin s.s. andlitsmálun, teymt undir börn á hestum, leikir og annað sprell. Heitt á könnunni inni, sjoppusala og grillaðar pylsur. Sjáumst!
17. júní 2026 kl. 14:00
Viðburðir
Skjólbrekka