Stefnumót í bíóhúsinu á Laugum
Starfsmenn stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sækja Þingeyjarsveit heim og bjóða til sín gestum frá Háskólanum á Akureyri, rannsóknasetri Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, Huldu náttúruhugvísindasetri ásamt Jack Armitage frá Breiðanesi.
Fluttir verða fjölbreyttir örfyrirlestrar og boðið upp á umræður að þeim loknum. Dagskráin fer fram í Bíóhúsinu á Laugum sunnudaginn 1. nóvember kl. 17:00
Dagskrá:
Trausti Dagsson og Rósa Þorsteinsdóttir: Hljóð- og hulduheimar Þingeyjarsýslu
Hermína Gunnþórsdóttir og Kristín Margrét Jóhannsdóttir: Kynning á Talís-verkefninu
Jack Armitage: Rista-vél: Núritunartungumál á íslensku
Kristín Ingibjörg Hlynsdóttir: Orðabækur og gögn
Finnur Friðriksson og Kristín Margrét Jóhannsdóttir frá Háskólanum á Akureyri:
„Maður er náttúrulega svo stoltur af því að vera Norðlendingur“: Viðhorf Norðlendinga til eigin framburðar
Umræður
Allir velkomnir