Slægjukvöldskemmtun
24okt. kl. 20:00-23:30
Viðburðir
Skjólbrekka
Á fyrsta vetrardegi, laugardagskvöldið 24. október ætlum við að fagna vetri saman í Skjólbrekku.
Að þessu sinni verður ekki ball, en þess í stað viljum við bjóða frítt inn á kvöldskemmtun.
20:00 - Húsið opnar 
20:15 - Létt og laggott tónlistarbingó til að koma okkur í gírinn
21:00 - Uppistand með Heimamönnum
20:15 - Létt og laggott tónlistarbingó til að koma okkur í gírinn
21:00 - Uppistand með Heimamönnum
Heimamenn eru hópur heimafólks frá Akureyri sem gerir grín að lífinu og öllu sem því fylgir.
Frítt inn og velkomið að koma með eigin drykki 
Húsið verður opið til klukkan 23:30
Jón Atli verður klár á leigubílnum allt kvöldið sími: 781-1259
Hlökkum til að sjá ykkur 
Jarðböðin verða í slægjustuði
Þessa helgi, föstudags og laugardagskvöld verður Sushi á boðstólnum á veitingastaðnum í Jarðböðunum - mikilvægt að panta borð.