Ágæta áhugafólk um skógrækt.
Nú er einstakt tækifæri. Skemmtiferð um Reykjahverfi í boði Skógræktarfélags Reykhverfinga. Sömuleiðis glæsilegar kaffiveitingar á þeirra vegum. Í tilefni aðalfundar Skógræktarfélags Suður Þingeyinga, laugardaginn 13. júní, fararstjóri er Atli Vigfússon.
Skráning þarf að hafa borist í síðasta lagi 5. júní til viðkomandi, Agnes Þórunn Guðbergsdóttir, sími 8498902 eða á aggatota@simnet.is , vegna stærð bíls og veitinga.
Kl. 13.00. Mæting við Heiðarbæ, Reykjahverfi, best að sameinast í bíla þangað. Farið í Hveravelli. Stoppað við Yztahver. Sagt frá sögu staðarins og skógræktinni.
Kl. 13.30. Farið í Litlu-Reyki. Þar skoðað elsta tré sveitarinnar og sagt frá sögu þess. Sagt frá skógræktinni á Rein sem sést vel frá bænum. Ef til vill litið á heimilisgarðinn.
Kl. 14.00. Farið í Víðiholt. Þar litið á skógrækt sem hófst á þessari öld. Búið er að planta 75.000 plöntum á bænum.
Á leiðinni frá Víðiholti er rætt um sveitina í bílnum. Ræktunarmöguleikar ræddir og horft úr bílnum á undirbúning skógræktarinnar á Hvammsheiði sem sést vel og er í höndum eigenda Þverár í Reykjahverfi.
Kl. 14.30. Ekið að Laxamýri. Þar rætt um skjólbelti. Gildi þeirra fyrir búpening, ræktun og útlit bændabýla. Ekið niður að Æðarfossum og þar skoðað (úr bílnum) hvernig land breytist við uppgræðslu.
Kl. 15.00. (Ef til vil örlítið síðar.) Komið í Heiðarbæ.
Aðalfundur Skógræktarfélags Suður-Þingeyinga.
Veislukaffi í fundarlok.
Stjórn Skógræktarfélags Suður-Þingeyinga.