Viðburðarstjórinn / Der Schauspieldirektor eftir W.A. Mozart í Skjólbrekku skírdag 2.apríl og föstudaginn langa 3.apríl kl. 20.
Hvernig fer þegar tvær óperusöngkonur, umboðsmaður úr poppinu og jarðarfararsönghópur úr sveitinni bóka öll Skjólbrekku samtímis ? Skemmtilegur óperufarsi í boða meistara Mozarts.
Fjóla Kristín Nikulásdóttir sópran
Lilja Guðmundsdóttir sópran
Snorri Wium tenór
Sinfóníuhljómsveit Laufeyjar Sigurðardóttir og syngjandi heimamenn
Elena Postumi hljómsveitarstjóri
Bjarni Thor Kristinsson leikgerð, leikstjórn og bassasöngur
Vegna umfang verkefnisins 2026 verður óperan flutt tvisvar sinnum í Skjólbrekku, fyrri sýning á skírdag og sú síðari föstudaginn langa 3.apríl 2026.
2. apríl 2026 kl. 20:00-21:00
Viðburðir
Skjólbrekka