Fara í efni

Fjölskyldusmiðja í Breiðumýri

Marta Guðrún Jóhannesdóttir safnkennari Árnastofnunar tekur á móti gestum á öllum aldri í félagsheimilinu Breiðumýri sunnudaginn 1. nóvember  milli kl. 14–16. Í fjölskyldusmiðjunni munu þátttakendur bregða sér í hlutverk skrifara frá miðöldum þar sem þeir fá tækifæri til að skrifa á skinn (bókfell) með fjaðurpenna og jurtableki. Hægt verður að fræðast um gerð skinnhandrita og skoða eftirlíkingu af Flateyjarbók ásamt fleiru. Viðburðurinn er haldinn í tilefni 20 ára afmælis Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.  Ungir gestir sérstaklega velkomnir. 

Getum við bætt efni þessarar síðu?