Fara í efni

Birkistund í Vaglaskógi

Við bjóðum til birkistundar í eldaskálanum í Vaglaskógi í tilefni útgáfu bókarinnar BirkiVist – BirkiVera: Birki í menningu, listum og lífinu. Þar ætlum við að anda að okkur birkilykt, hlusta á tónlist Svavars Knúts um birki, stunda birkihugleiðslu undir leiðsögn Þuríðar Helgu Kristjánsdóttur, heyra skógarvörðinn Helgu Ösp Jónsdóttur tala um birki sem meira en bara tré, hlusta á Auði Aðalsteinsdóttur lesa upp úr bókinni um menningarlegt gildi birkis og hlýða á ljóð um birki.

Eldaskálinn verður kominn í notalegan jólabúning og boðið verður upp á birkidrykki, ketilkaffi og aðrar léttar veitingar. Hægt verður að kaupa bókina BirkiVist – BirkiVera á tilboðsverði.

 Rannsóknasetur HÍ í Þingeyjarsveit and HULDA - náttúruhugvísindasetur

Getum við bætt efni þessarar síðu?