Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum standa fyrir hátíðarhöldum 1. maí á Fosshótel Húsavík. Hátíðin hefst kl. 14:00.
Boðið verður upp á veglegt kaffihlaðborð frá hótelinu, hátíðarræður, auk þess sem heimamenn í bland við góða gesti munu sjá um að skemmta gestum með frábærum tónlistaratriðum.
Dagskrá:
• Tónlistaratriði: Elísabet Anna Helgadóttir og Eik Árnadóttir syngja Maístjörnuna og nokkur lög við undirleik Kristjáns E. Helgasonar
• Ávarp: Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar stéttarfélags
• Tónlistaratriði: Söngatriði úr leikritinu Rocky Horror í flutningi LH
• Hátíðarræða: Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar stéttarfélags
• Tónlistaratriði: Eyjólfur “Eyfi” Kristjánsson flytur nokkur af sínum bestu lögum
• Tónlistaratriði: Tónasmiðjan flytur dægurlög undir stjórn Elvars Bragasonar
Meðan á hátíðarhöldunum stendur verður gestum boðið upp á kaffihlaðborð.
Þingeyingar og landsmenn allir, tökum þátt í hátíðarhöldunum og drögum fána að húni á hátíðar- og baráttudegi verkafólks 1. maí 2026