Umf. Efling og Kvenfélag Mývatnssveitar bjóða sveitunga, nærsveitunga, vini og vandamenn velkomna til 17. júní hátíðahalda á íþróttavellinum á Laugum.
Hátíðahöldin hefjast kl. 11:00 með skrúðgöngu frá bílaplani íþróttahússins og niður á íþróttavöll. Þar verður svo nokkuð hefðbundin 17. júní dagskrá en við viljum vekja athygli á því að andlitsmálning sem vanalega hefur verið boðið upp á í aðdraganda skrúðgöngunnar verður að þessu sinni hluti af dagskránni á íþróttavellinum.
Hægt verður að kaupa fána o.þ.h. við íþróttahúsið frá kl. 10:30. Veitingasala (pylsur og ýmislegt gotterí) verður síðan á íþróttavellinum að lokinni hefðbundinni hátíðardagskrá. Það verður sápubraut/fótbolti og því mælum við með að hafa aukafatnað með fyrir þau ykkar sem vilja taka þátt í því
Hægt er að fylgjast með upplýsingum varðandi viðburðinn á facebook: https://fb.me/e/4ZPJs5yC5 (ef hlekkurinn virkar ekki má afrita hann og líma í nýjan vefglugga)