Fara í efni
22-23 okt 2025 Viðburðir Skútustaðir, Ýdalir og Stórutjarnir

Kynningarfundir um tillögu til aðalskipulags

Boðið er til fundar fyrir íbúa Þingeyjarsveitar, þar sem tillaga að aðalskipulagi sveitarfélagsins verður kynnt. 22. október verða tveir fundir, kl. 16:00 í Skjólbrekku og kl. 19.30 að Ýdölum. 23. október verður svo fundur að Stórutjörnum kl. 16:00.

  • Á fundinum verður meðal annars:
    - Kynning á tilgangi aðalskipulagsins.
    - Aðdraganda skipulagsgerðar og vinnuferli.
    - Kynning á markmiðum og efni aðalskipulagssins og hvar hægt er að nálgast gögn þess.
    - Kynning á því hvernig íbúar og hagsmunaaðilar geta komið fram athugasemdum.
    - Yfirferð á tímaramma aðalskipulagsins.

------------------------------------------------------------------------
Skipulagssvæðið er allt land innan Þingeyjarsveitar sem varð til við sameiningu Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar árið 2022.

Margvíslegar breytingar á opinberri stefnumörkun og regluverki hafa orðið frá því að gildandi aðalskipulagsáætlanir voru samþykktar, t.d. landsskipulagsstefna, ýmsar framkvæmdaáætlanir, skipulagsreglugerð o.fl. Síðast en ekki síst má nefna aukna áherslu á sameiginlegt átak jarðarbúa til að bregðast við hnattrænum áskorunum.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eða vilja gera athugasemdir er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna á auglýsingatíma sem er frá 22. september til 4. nóvember 2025. Tillagan er aðgengileg útprentuð á skrifstofu sveitarfélagsins í Þingey á Laugum og í skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is mál nr. 881/2023 og skal athugasemdum skilað í gegnum gáttina. Opið er fyrir athugasemdir til 4. nóvember.

Getum við bætt efni þessarar síðu?