Að neðan má finna allar helstu upplýsingar um skipulagsmál í Þingeyjarsveit.
Inni á kortasjá Skipulagsstofnunnar er að finna þær skipulagsáætlanir sem eru í gildi.
Í vinnslu er nýtt aðalskipulag fyrir sameinað sveitarfélag, vefsjá er í vinnslu og hana má nálgast hér.
Vinnureglur skipulagsnefndar
Vinnureglur um útgáfu gistileyfa í íbúðahverfum
Vinnureglur vegna útgáfu byggingarleyfa ferðaþjónustuhúsa á landbúnaðarsvæðum
Byggingarleyfi
Hverjir geta sótt um byggingarleyfi?
Húseigendur og lóðarhafar eða hönnuðir í umboði lóðarhafa.
Hvernig er sótt um rafrænt byggingarleyfi?
Á slóðinni https://minarsidur.mvs.is er sótt um byggingarleyfi á rafrænu formi. Við innskráningu er krafist íslykils eða rafrænna skilríkja. Umsækjandi getur einnig verið þriðji aðili í umboði lóðarhafa / eiganda. Öllum gögnum frá umsækjanda, hönnuðum eða hlutaðeigandi aðilum skal skilað inn í gegnum gáttina.
Hér eru glærur með leiðbeiningum um ferlið á síðum Mannvirkjastofnunnar. ATH! Uppfærsla hefur átt sér stað á vefnum frá því að leiðbeiningarnar voru gefnar út svo örlítill munur gæti verið milli glæranna og raunferlisins.
Hér má líka sjá myndskeið með leiðbeiningum.
Til að sækja um byggingarleyfi á sama hátt og áður skal nota eyðublöðin hér fyrir neðan:
Eyðublöð fyrir Skipulags-, byggingar-, og lóðamál
Útbúin hafa verið eyðublöð sem eru ætluð í samskiptum milli embættisins, eigenda byggingarframkvæmda, hönnuða, byggingarstjóra, iðnmeistara og annarra sem málið varðar. Eyðublöðin eru útfyllanleg rafrænt. Þar til afgreiðsla umsókna hefur verið gerð rafræn geta notendur fyllt eyðublöðin út á vefnum, prentað þau út og undirritað eigin hendi og sent með viðeigandi fylgigögnum á skrifstofu Þingeyjarsveitar í Kjarna, 650 Laugum.
Umsókn um byggingarleyfi / umsókn um stöðuleyfi (PDF skjal)
Umsókn til skipulagsnefndar (word skjal)
Meistara- og byggingastjórablað
Skipulagsáætlanir í gildi
Aðalskipulag