Stórutjarnaskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir leikskólakennara/leikskólastarfsmanni í tímabundna afleysingu í leikskóladeild í 70-75% starf sem:
Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik- grunn- og tónlistarskóli með um 40 nemendur frá eins árs til 16 ára aldurs. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði. Skólinn er Grænfánaskóli og Heilsueflandiskóli og leggur áherslu á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólans og er skólinn í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni.
Áhugasamir þurfa að geta hafið störf 1. september 2023 og eru hvattir til að hafa samband í síma 4643220/8483547 eða í gegnum netfangið birnada@storutjarnaskoli.is vegna frekari upplýsinga.
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst. Starfið er tímabundið, a.m.k. til áramóta. Umsóknir skulu sendar á netfangið birnada@storutjarnaskoli.is
Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi. Gerðar eru kröfur um hreint sakavottorð.